Okkar hugsun

"Chicos" í El Salvador
"Chicos" í El Salvador
Síðan 1954 hafa Bræður Okkar og Systur (NPH) byggt heimili fyrir þúsundir yfirgefna- og munaðarlausra barna. Fyrsta heimilið opnaði í Mexíkó og þar á eftir í Honduras, Haítí, Nikarakva, Gvatimala, El Salvador, Dóminíska Lýðveldinu, Perú og Bólivíu. Í dag hafa yfir 16.200 börn verið elskuð og menntuð af þessari einstöku fjölskyldu.

Vegna aðstoðar fjöldra skrifstofa NPH um allan heim fá börnin fæði, föt, heimili, læknisaðstoðar og menntunar. "Menntun," segir Séra Wasson, "mun losa börnin mín úr fátæktinni sem þau voru fædd í."

Börn á öllum aldri fá umhyggju frá Nuestros Pequenos Hermanos (Litlu bræður okkar og systur). Sum hafa verið yfirgefin. Önnur hafa misst bæði móður og föður og hafa engan í þeirra stað. Mörg þeirra hafa ör, bæði á líkama og sál, sem á endanum gróa þegar þau hefja nýtt líf hjá NPH.

Með ást, öryggi, vinnu og ábyrgð, byrja börnin að dafna. Jafnvægi milli þessara þátta hjálpa börnunum að búa saman og lifa hamingjusamlegu lífi.

Ást og umhyggja

Börnin eru alin upp í jákvæðu umhverfi þar sem þau finna fyrir öryggi og festu. Þau finna að þau munu aldrei verða þvinguð til þess að yfirgefa heimilið. Þeim er lofað að þau munu aldrei verða aðskilin systkinum sínum. Ásamt því að fá menntun í skólum NPH þá er einnig lagður grunnur fyrir fullorðinsárin sem hjálpa þeim að komast úr þeirri fátækt sem áður voru örlög þeirra.

Störf og ábyrgð

Börnin eru hvött til þess að deila tíma sínum, hæfileikum og eignum með öðrum innan sem utan NPH fjölskyldunnar. Hvert barn hjá NPH hefur skyldu að sinna, hvort sem það er að sópa eða vinna á akrinum. Börnin koma tilbaka á heimilið eftir að hafa lokið framhaldsskóla og gefa 1-2 ár tilbaka áður en þau leggja fyrir sig háskólanám. Þau vinna í deildum, eldhúsinu, heilsugæslunni, skrifstofunni, o.s.f.v. Vegna aðstoðar þeirra þá lækkar kostnaður sem annars yrði notaður í starfsfólk og sjálfboðaliða. Krakkarnir koma tilbaka á heimilið af sjálfdáðum til að gefa tilbaka það sem þau eitt sinn fengu. Þau eru orðnir ábyrgir einstaklingar og sína það í hugsun og verki.



       React to this page and leave a public comment Leave Comment        Read all comments about this page Read Comments (0)

« til baka

© 2010 NPH  |  Trúnaðar yfirlýsing  |  Upplýsinga fyrirvari  |  gestir